Könnun

Hvað á ég að gera á nýju ári?

Auglýsing

TIL jólaaaa

Atburðarteljari

Borga hávaða og læti..

17. febrúar 2009 klukkan 09:01
Jæja þá.. Er komin enn og aftur til Milan ef það fór framhjá einhverjum. Ég semsagt er búin að leigja mér herbergi með 2 ítölum á mjög rólegum stað í milan eða nánar tiltekið í Milano Sud. En eins og gengur og gerist þá gengur lífið hjá mér sjalndast svona smooth :) Ég flutti semsagt á sunnudaginn í þetta herbergi sem er samt æðilslegt þar sem ég er með um 20 fm herbergi og er sjónvarp þar inni og rista stórt rúm OG mitt uppáhald þurrkugrind :) En já til að byrja a byrjun þá fór ég á Bed and Brekfast áður enég fór í herbergið og það var nú ekki eðlilegra en það að ég bjó INN á manni og konu hans í littlu svefnherbergi en þar sem þau fóru að vinna klukkan 9 þurfti ég að hundskast út og fékk jú að koma inn þegar MAMMA gaursins kom á daginn. Það var einn daginn klukkan 3 en hinn sem beturfer klukkan 11 :o Þetta var frekar furðuleg upplifun..
En já kom svo í herbergið á Sunnudaginn eftir þessa skemmtilegu Bed and Brekfast lífsreynslu en ég var ekki með neina sæng fyrstu nóttina hér. og engann kodda! Ég því klæðði mig í 2 náttbuxur, 3 peysur. lopasokka og settu jakka yfir mig. Náði engum svefn þar sem ég skalf eins og hrísla alla nóttina því  hér var um -1° og engin brjáluð kynding í þessu gömlu húsum.

En hvað um það er komin með sæng :) og kodda :))
Er að fara að hafa mig til fyrir skólann... ætla að reyna að vera dugleg að setja inn á hérm sem ég ætla reyndar alltaf að vera en ætla að standa mig núna þar sem ég er með internet þar sem ég bý!!!

Xx
Ansy
Anna Björg Kristinsdóttir
Almennt | Engin athugasemd

Totally lost..

12. desember 2008 klukkan 08:51
Úfffffffff....


Ég er sami vitleysingurinn og ávallt..
Ég týndi símanum mínu, kortunum, myndavélinn og hreinlega bara öllu nema sjálfri mér síðustu helgi svo ef ég svara ekki (sem ég geri nú samt sjaldnast) þá er það vegna þess :) hef löglega afsökun Núna..

Ég var búin að plana eftir að ég kom heim :
 A. finna mér vinnu B. og/eða skrá mig í skóla C. vera dugleg í ræktinni D. Vera dugleg að taka myndir fyrir skólann næsta haust. E. Bjarga heiminum til hins betra

Af þessu hef ég ekki gert neitt og eru nú 9 vikur síðan ég kom heim... Reyndar jú enga flótfærni byrjaði ég í ræktinni á mánudaginn og búin að fara alla dagana og Má segja það að líkaminn minn Finni ágætlega fyrir því!!!
Hitt er allt að fara að gerast.. var að taka myndavélina upp úr ferðatöskunni í gær svo aldrei að vita nema ég smelli einni og einni mynd :)

úff þetta tók á að hugsa þetta hvað ég átti að skrifa hér svo ætla að taka mér pásu í bili.. Bara eins og venjulega þá blogga ég svona þegar ég man.. og þegar eitthvað er að ske sem ég er nú ekkert viss um að verði neitt á næstunni!!

AnSyyyy kveður!


Anna Björg Kristinsdóttir
Almennt | Engin athugasemd

I am lost

02. desember 2008 klukkan 19:52
Halló...


Semsagt er Kreppu einstaklingur sem er komin heim frá mílanó og er atvinnulaus hér heim í alveg gríðalegri stemmingu.
Tók þessa ákvörðun þegar evran fór að hækka og ef ég reikna núna þá kostaði íbúðin mín 800 evrur með hita það mundi gera í dag um 160.000! Ég tók þá skemmtulegu ákvörðun að setja mig frekar á hausinn hér heima heldur en út :)

Ég mun halda aftur út í september 2009 og fékk ég skólagjöldin mín fryst í 1ár. Svo bara óskandi að evran verði þá ekki búin að hækka þá enþá meira því þá verð ég að taka upp snögglega breytingu á  vinnu :)

Bless í bili.. er að spara internetið!
Ansy
Anna Björg Kristinsdóttir
Almennt | Engin athugasemd

Mílanó er litla RVK...

28. september 2008 klukkan 17:52

Jæja þá er 1 próf búið...

En ég ætla að byrja á byrjun.. smá hótel vesen en er búin að finna mér íbúð úfff svo ég get ekki annað en verið sí brosandi hérna :)) Ætla setja inn myndir af húsinu og staðsetningunni.. er alveg hoppandi ánægð!

En já próf... fór í próf á fimmtudaginn semsagt í fashion journalism. Eina sem mig GRUNAÐI er að ég ætti að skrifa grein um eitthvað tengt tísku.
Kennarinn byrjaði á að sýna video frá hönnuði sem heitir Paul smith.. (NO CLUE hver það er :O ) Svo áttum við að skrifa 250-400 orð mátti ekki vera minna né staf lengra um bakgrunn hans og collection. Ég bullaði þarna alveg á milljón svaka fína grein sem ég svo komst að þegar ég var búin að var 560 orð svo þurfti að fara að stroka út. Ég get svo sannalega bullað...

en já annars bara sól og fuglasöngur hérna megin í evrópu...
Later :)
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Afhverju virðist jörðin vera blá?!

19. september 2008 klukkan 01:24

Jæja... ég ar að fara út eftir um 2 og hálfan dag..

Ég komst svo skemmtilega að því að  jú ég lendi í písa en það er víst ekkert flug né lest sem fer beint til mílanó, svo planið mitt núna er að taka lest frá písa til flórens svo þaðan til bologna og loks til mílano :)) SKO allt að gerastttt ! Anna eins og oft áður ein á einhverju vírd ferðalagi. Fæ flash back í þegar ég var sjálboðarliði í grikklandi.. var ein og skildi ekki neinn.. býst við svipaðri upplifun í þetta sinn :D

En já ég er held ég komin með íbúð svona fyrst þegar ég er komin út... en enþá er ég á "að ég held"... það væri svakalegur léttir því annars sé ég fram á að sofa með  allan farangurinn á central station í mílanó - EFTIR 6 tíma flugferð og 5 tíma lestarferð.. já það væri alveg stemming útaf fyrir sig!!

ég mun skrifa reglulega um mína skrautlegu ævi og ferðalag :)

Later
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Hvar er júpíter..

15. september 2008 klukkan 00:54

Jæja nú eru aðeins 5 dagar í að ég fari aftur til mílanó.. :S ekkert alltof spennt eins og er, er búið að vera vont veður þar (semsagt stormur) en ahhh það er örugglega bara út af komu minni..
Búið að vera 35 stiga hiti allan mánuðinn en svona rétt áður en ég kem breytist þetta í grenjandi rigningu og 14 stiga kulda, kósý!!!!
Já hef ekki enþá komist að því um hvað prófið sem ég er að fara í núna 25 september er um... en það heitir fashion journalism svo ég giska á að ég þurfi að skrifa eitthvað gáfulegt um tísku?!?! En eins og öll hin mín próf vona ég að ÞETTA verði ekki munnlegt þar sem ég hef aldrei farið í tíma í þessu fagi og á þá ekki eftir að getað sagt mikið!!!

Ansy.. kveður smá taugaveikluð!!
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Ef líf sé á mars

12. september 2008 klukkan 21:36
Þetta blogg er það tilganslausasta og ónytsamlegasta sem gerist.

Dagurinn í dag: Þunn
Kvöldið í kvöld: Full
Morgundagurinn: Vinna!

Ansy
Kveður
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Heimsendir á næstunni...

10. september 2008 klukkan 15:25

Var búin að velta því fyrir mér hverju mátti búast við í dag. Heyrði nú í fréttum að rafskautið sem átti nú að skjóta í dag gæti myndað lítil "svarthol" sem mundi svo stækka þar til að jörðin mundi einfaldlegast gleypast. Ég byrjaði því að hugsa.. Við hverju á ég að búast í dag: litlum holum í jörðina sem allt sogast ofaní, já best að halda sig frá því.  Svo fór skynsemin mín að taka smá í og meina við erum lítið land svo litlar líkur að það myndaðist þetta svarthol hér. En þá er spurningin getum við flogið yfir þessi hol og hvesu nálægt þeim við megum fara.. svo er þetta hola ofan í jörðina sem við þurfum bara að passa okkur að detta ekki í? eða er þetta eins og kvisandndur að þetta tekur mann bara niður hvort sem maður ætlar sér að hoppa eður ei. Hmmm.. Ég er búin að vera í viðbragðstöðu í allan dag og búa mig undir þessi svarthol hér og þar um allan heim en þá kom í ljós að þetta var bara test í dag þetta á víst ekki að vera sett af stað fyrr en eftir nokkra daga svo ég get verið róleg þangað til úffff!!!

Alltaf  gott að vera með varann á... frekar vandræðanlega óþæginlegt að klunnast við að detta ofan í eitthvað svartholt bara afþví maður er kærulaus!!!

En þetta var mín vangavelta þessa vikuna!

Later
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

The good old Iceland..

29. ágúst 2008 klukkan 21:52
Jæja... einvhervegin hef ég á tilfiningunni að heppnin mín sé ekki búin að breytast mikið,
á síðustu 2 vikum er ég búin að fljúga á hausinn í vinnunni minni og eru aðeins 1 stelpa og um 30 strákar sem urðu vitni að þessum atburði (EKKERT vandræðanlegt:) svo er ég heimilskaus sem kemur ekkert á óvart þar sem ég er búin að vera heimilislaus 4 sinnum á síðasta ári :=) ...
Hey já svo keypti ég í flýti flug 6 september en þarf ekkert að fara út fyrr en um 25 svo hef ekkert að gera við þennan miða og það er víst ekki hægt að skipta honum nema borga 70 þús á milli sem er dýrari en miði!

Er búin að gráta eftir að ég fór vitalust í peyuna mína einn morgun... ahahaha talandi um drama kast!!
Ég þarf að vera duglegri að blogga í framtíðinni, en þar sem ég veit ekki hvenær ég fer út, Né hvort ég fái íbúð ( þá verð ég bara á þráðlausu neti og í svefnpoka á Lestarstöðinni, kósý!!

En annars læt ég vita hvernig þetta ævintýri fer hjá mér.. verður eflaust eitthvað skrautlegt..
Fer semsagt í próf 25 ágúst í fagi sem ég veit ekki hvað er.. eitthvað um ritstjórn og uppsetningu á blaði svo já ég verð bara dugleg að skrifa hér hvað er að ske hjá mér :)

LAter
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Óstöðugur pirringur

29. júlí 2008 klukkan 11:15
jæja...

Ég er búin að kvarta sáran yfir kerfinu á ítalíu, þeir hafa neitað mér að ísland væri í evrópu, þeir vilja ða maður póstsendi allt ( sem þýðir 2 tíma bið póststofunni), þeir hafa SÉR ítalska sjúkratryggingu og flokkast ekki evrópsk sjúkratrygging undir það Svo fátt sé nefnt. Þetta eru ein af fáu vesenis málum sem ég hef lent í síðasta árið mitt við að búa á ítalíu.

Ég kom nú hingað fyrir rétt tæplega mánuði og ég hélt að kerfið hér væri svo fullkomið og hef ég komist að því að það er skárra að bíða í 2 tíma röðum í mílanó en að það gerist EKKI neitt eins og hér. Og verð ég þá að benda á lánasjóð íslenskra námsmanna sem hefur alveg skammarlega lélega þjónustu og hge ég á tilfiningunni að þeir setja upp reglur sínar til að reyna að gera okkuir námsmönnum lífið eins erfitt og þeir mögulega geta!!!
Ég er einmitt í þeirri stöðu að ég þarf að borga mitt annað ár núna fyrir 31 júlí, en þar sem ég þarf að taka 1 sjúkrapróf úti (af 13 prófum sem ég Náði) þá vilja þeir hvortki lána fyrir 2 ári né borga fyrir það fyrsta, allataf gaman að vera með rúman milljón kall á yfirdrætti hjá íslenskum bönkum.

 OGg ég ætla ekki að gera sjái mér að byrja að tala um bankakerfið hér, samt finnst mér undarlegt líka að LÍN þessi hjálparlega stofnun fyrir námsmenn í þessu landi láta lánin tikka á bankavöxtum þar til maður hefur lokið árinu. Eins og ég segi það skín ekkert að ríkið vill að við lærum, þeir eru að minnstakosti búinir að gera mér ansi erfitt fyrir!

Smá pirringur sem ég varð að koma frá mér, víst  ég var byrjuð að pirrast!!

En er að njóta sumarsinns hér með að vinna.. enda er ekkert veður til að gera neitt annað Öskrandi

Fékk flug frá múttu í afmælisgjöf út svo það er kominn tími á hvenær ég fer..

Seinna,
AnSy
Anna Björg Kristinsdóttir
Engin athugasemd